Leiðarlýsing í Surtshelli/Stefánshelli
|
Frá tónleikum í Grábrókargíg |
Frá Borgarnesi er um það bil klukkutíma akstur í Surtshelli, tveir tímar frá Reykjavík. Farið er eftir Borgarfjarðarbraut og eins og verið sé að fara í Húsafell. Afleggjarinn er skammt frá bænum Kalmannstungu og hægt er að aka að honum bæði yfir brúna yfir Hvítá hjá Bjarnastöðum og þar áfram eða fara í Húsafell og þar áfram og að afleggjaranum í Surtshelli. Afleggjarinn er malarvegur í ekkert allt of góðu ástandi þannig að best er að fara rólega, en fær öllum bílum.