Bergþór Pálsson

Bergþór Pálsson stundaði nám við Tónlistarskólann í Reykjavík og Indiana University í Bloomington þar sem hann lauk B.M. og Master’s námi.Árið 1996 lauk hann leiklistarnámi frá Drama Studio London.

Bergþór hefur m.a. farið með yfir 50 óperuhlutverk, haldið fjölda einsöngstónleika og sungið einsöng í kórverkum, t.d. í Mattheusarpassíu, Jóhannesarpassíu og Jólaóratóríu Bachs, Sköpuninni og Árstíðunum eftir Haydn, Carmina Burana eftir Orff, Sálumessu Mozarts og Elía eftir Mendelssohn.

 

Jónína Erna Arnardóttir

Jónína hlaut fyrstu menntun sína í píanóleik við Tónlistarskóla Borgarfjarðar, en útskrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1990 með burtfarar-og kennarapróf. 

Jónína stundaði framhaldsnám við Tónlistarháskólann í Bergen frá 1991-1995 og lauk þar lokaprófi í píanóleik og kammermúsik með söng sem aukafag.  Hún lauk auk þess framhaldsprófi í söng vorið 2009.

Hún starfar nú sem kennari og deildarstjóri píanódeildar í Tónlistarskóla Borgarfjarðar auk þess að sinna meðleik við fiðlu- og söngdeild skólans.

Hún hefur leikið á fjölmörgum tónleikum sem meðleikari og einleikari.  M.a. tónleikum Tónlistarfélags Borgarfjarðar haustið 2003 ásamt Zsuzsönnu Budai píanóleikara, einnig sumarið 2008 á tónleikum í Sigurjónssafni, Hólum, Bifröst og Gljúfrasteini ásamt Guðrúnu Ingimars sópransöngkonu.

Er listrænn stjórnandi IsNord tónlistarhátíðarinnar í Borgarnesi, sem haldin var í fyrsta skipti 2005, og hefur komið þar fram með m.a. Gunnari Guðbjörnssyni, Bergþóri Pálssyni, Guðrúnu Ingimarsdóttur, Theodóru Þorsteinsdóttur, Dagrúnu Hjartardóttur og Sinfóníuhljómsveit Norðurlands.

 

Guðrún Ingimars

Guðrún Ingimarsdóttir er uppalin á Hvanneyri í Borgarfirði.  Hún stundaði söngnám við Söngskólann í Reykjavík undir handleidslu Elínar Òskar Òskarsdóttur og lauk þaðan námi með hæstu einkunn.  Guðrún hélt síðan til Lundúna þar sem hún stundaði söngnám hjá próf. Vera Rozsa um tveggja ára skeið.  Àrið 1995 hóf hún framhaldsnám við einsöngvaradeild tónlistarháskólans í Stuttgart, hjá hinni heimsfrægu söngkonu Sylviu Geszty og í óperudeild skólans .  Guðrún hefur tekið þátt í fjölmörgum óperuuppfærslum í Þýskalandi, Sviss, Englandi og Ìslandi.  Meðal hlutverka sem hún hefur sungið eru: Despina í Cosi fan tutte, Blondchen úr Brottnáminu úr kvennabúrinu, Næturdrottningin úr Töfraflautunni, Gréta í Hans og Grétu, Titania í Álfadrottningu Purcells, Kurfürstin í Fuglafangara Zellers og Adele í Leðurblökunni.

Guðrún hefur komið fram á fjölda tónleika víða um Evrópu.  Ber þar  að nefna uppfærslur á Carmina Burana í útvarpsal útvarpsins í Frankfurt og í Istanbúl, jólatónleika í beinni útsendingu hjá Hessischer Rundfunk, tónleikaferð um Ìtalíu med Exultate Jubilate eftir Mozart og tónleikar í Bayerische Staatsoper svo að nokkur dæmi  séu nefnd.

Ì flutningi kirkjutónlistar tekur Guðrún einnig virkan tátt. Hún hefur sungid Sálumessu Fauré´s in Sviss,Englandi, Portúgal og Tyskalandi. Sköpunina eftir Haydn Sálumessu Mozart´s, óratoríur og kantötur Bach´s.

Flutningur óperettutónlistar hefur einnig verið veigamikill í starfi Guðrúnar í Þýskalandi og hefur hún sungid á meira en 60 nýárstónleikum vítt og breitt um Þýskaland og Austurríki og verið sæmd heiðursorðu Johanns Strauss félagsins í Þýskalandi.

Guðrún hefur hlotið viðurkenningar fyrir söng sinn.  Ber þar hæst að nefna að hún vann til verðlauna í alþjóðlegu Erika Köth söngkeppninni í Þýskalandi 1996.